Aldrei áður gerst í sögu HM
Í fyrsta sinn í sögu HM eru fjögur efstu lið heimslista FIFA komin í undanúrslit.Frakkland, sem er í efsta sæti heimslistans, mætir Spáni, sem er í þriðja sætinu. Argentína, í öðru sæti, mætir Englandi, liðinu í fjórða sæti.Breytt fyrirkomulag fyrir HM í ár á sinn þátt í þessu. Liðunum fjórum var komið fyrir á mismunandi stöðum í útsláttarkeppninni þannig að þau gætu ekki mæst fyrr en í undanúrslitum, að því gefnu að þau ynnu sína riðla.