Today in News History

On July 13, several notable moments in the history of News stand out. In 858, Æthelwulf, King of Wessex passed away. In 1629, Caspar Bartholin the Elder, Swedish physician and theologian (born 1585) passed away. In 1890, Johann Voldemar Jannsen, Estonian journalist and poet (born 1819) passed away. In 1913, Mærsk Mc-Kinney Møller, Danish businessman (died 2012) was born. In 1922, Anker Jørgensen, Danish trade union leader and politician, 16th Prime Minister of Denmark (died 2016) was born. In 1929, Svein Ellingsen, Norwegian visual artist and hymnist (died 2020) was born. In 1932, Per Nørgård, Danish composer and music theorist (died 2025) was born. In 1941, Ehud Manor, Israeli songwriter and translator (died 2005) was born. In 1969, Oleg Serebrian, Moldovan political scientist and politician was born. In 1995, Godtfred Kirk Christiansen, Danish businessman (born 1920) passed away. Together, these milestones provide historical context for today's news news and ongoing narratives.

Dregur Aþenu úr úrvalsdeildinni og segir borgina vanrækja efra Breiðholt

RÚV

RÚV

·

July 12, 2026

·

lean left
Dregur Aþenu úr úrvalsdeildinni og segir borgina vanrækja efra Breiðholt

Aþena komst í vor upp úr fyrstu deild kvenna í körfubolta og átti að spila í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Af því verður þó ekki. Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi Aþenu, tilkynnti í dag að meistaraflokkur kvenna verði líklega lagður niður og að félagið muni draga til baka þátttöku sína í úrvalsdeildinni.Ástæðuna segir hann vera þá að Reykjavíkurborg hafi enn ekki endurnýjað rekstrarsamning við félagið né veitt því heimild til að koma upp fundar- og kennsluaðstöðu í Austurbergi, sem Aþena hyggst byggja á eigin kostnað.Við erum búin að vera að biðja um rekstrarsamning sem við vorum með fyrir ári og vorum þá í baráttu við þáverandi meirihluta. Við erum búin að vera að bíða eftir því að nýr meirihluti taki við. Okkur er bara ekki stætt á því að taka ákvarðanir varðandi skuldbindingar um leikmenn og þjálfara nema að við séum með örugga tilvist. Samningurinn veitir okkur örugga tilvist“ segir Brynjar í viðtali við RÚV.Körfuboltafélagið Aþena ætlar að draga til baka þátttöku sína í úrvalsdeild kvenna. Þjálfari og stofnandi Aþenu gengst við því að geta verið óþægilegur í samskiptum en sakar borgaryfirvöld um að vanrækja efra Breiðholt og vinna ekki vinnuna sína.Fer ekki fram á aukið fjármagnÞar sem nýtt keppnistímabil nálgist í körfuboltanum þurfi hlutirnir að komast á hreint. Það væri mjög óábyrgt af okkur að ætla að bíða með að sjá hvað nýr meirihluti ætlar að gera.“ Hann segir útséð með að þátttaka meistaraflokks verði dregin til baka úr úrvalsdeildinni en eftir eigi að koma í ljós hvort liðið spili áfram í næst efstu deild. En við getum ekki sett meiri pening í þetta.“Brynjar fer ekki fram á aukið fjármagn frá borginni heldur eingöngu að fyrirliggjandi samstarf verði endurnýjað og félaginu gert kleift að halda áfram uppbyggingu sinni.Drullist til að klára þettaEf að samningurinn kemur ekki þá verður starfið lagt niður. Þetta er í raun bara fyrsta skrefið. Nú er bara að sjá hvort þessi borgaryfirvöld drullist ekki til að klára þetta og vinna vinnuna sína þó að það þurfi að sparka í einhverja upp úr smá sumarfríi. Við erum að tala um einn skitinn samning. Það er þá alla vega hægt að gefa okkur svör við því. Þetta er ekkert flóknara en það.“Brynjar segir meistaraflokkinn gegna lykilhlutverki í öllu starfi félagsins, þar sem leikmenn liðsins séu jafnframt þjálfarar yngri flokka, fyrirmyndir og burðarásar félagsins. Ef meistaraflokkurinn hverfur tapist um leið þekking, reynsla og traust sem hafi tekið mörg ár að byggja upp.Aþena er í raun félagslegt hjálparstarfBrynjar leggur jafnframt áherslu á að starfsemin sé mun víðtækari en hefðbundið íþróttastarf. Um 120 stúlkur í 111 Reykjavík taki þátt í starfi Aþenu og þeim fjölgi um 30 á ári. Hann segir stóran hluta iðkenda koma úr hópi barna sem íþróttahreyfingin hafi áður átt erfitt með að ná til. Starfið felist meðal annars í stuðningi við heimanám, íslenskukennslu, leiðtogaþjálfun og því að skapa börnum öruggt félagslegt umhverfi.Brynjar bendir á að aðeins 11 börn úr um 11 þúsund manna hverfi hafi verið virk í skipulögðu íþróttastarfi í Austurbergi áður en félagið hóf þar starfsemi. Hann telur félagið hafa sýnt fram á verulegan árangur í fjölgun iðkenda og uppbyggingu í hverfi þar sem þátttaka barna í íþróttum hefur lengi verið með því minnsta í Reykjavík.Það sem fólk fattar ekki er að Aþena er í raun félagslegt hjálparstarf. Fólkið sem hrundi þessu af stað er allt í sjálfboðavinnu. Við erum bara tvö, ég og ein móðir, sem erum búin að vera að vinna í þessu allan þennan tíma sem eru að verða sjö ár. Við erum að setja margar milljónir í þetta úr eigin vasa, ásamt vinum okkar sem eru fyrirtækjaeigendur og fólk sem treystir okkur.“Forréttindablinda og jaðarsetning á heilu hverfiBrynjar gengur svo langt að saka borgaryfirvöld um að vanrækja efra Breiðholt eða hverfi 111. Þú þarft ekki annað en að keyra í gegnum Breiðholtið og tala við þá sem standa í þessu. Þetta er bara skólabókardæmi um það hvernig þú jaðarsetur heilt hverfi. Ef þú býrð í öðrum hverfum, með börnin þín í öðrum aðstæðum, og mætir þangað uppeftir þá sérðu hvað í gangi. Þetta eru svakalegar andstæður.Ástæðuna fyrir því hversu illa hafi gengið að loka málinu með borgastjórn segir Brynjar: Ég held að þetta sé forréttindablinda hjá mjög mörgum og sérstaklega þeim sem koma að þessu. Ég er ekkert að segja það á neikvæðan hátt, ég er sjálfur með forréttindablindu en ég er það kannski ekki þegar búið er að berja mig í hausinn nokkrum sinnum með einhverjum pappírum sem sýna þetta. Þegar verið er að tala um að ég sé óþægilegur, ég held kannski að aðrir hafi verið full þægilegir af því að ég er eini maðurinn sem er að benda á þetta. Hver er að tala um málin í Breiðholti?“Umdeildur þjálfariBrynjar Karl hefur lengi staðið í stappi við borgaryfirvöld en einnig við íþróttaforystuna. Þjálfunaraðferðir hans hafa verið umdeildar og óhætt er að segja að hann sé umdeildur maður. Af hverju ætli það sé?Þú meinar í íþróttaforystunni? Þetta er svona bransi þar sem sjaldan er mikið undir. Þessi íþróttaforysta vill oft njóta sinnar forystu, það nennir einhvern veginn enginn að takast á við þetta. Svo allt í einu færðu einhvern yngriflokkaþjálfara sem bæði hefur getuna, þekkinguna, reynsluna og viljann til þess að fara í þetta, þá fattar maður að víða er pottur brotinn, sem er bara eðlilegt.“Þegar þú ætlar að breyta einhverju þá þarftu að benda á það sem betur má faraBrynjar segist þó kunna einkar vel við Willum Þór Þórsson, núverandi forseta ÍSÍ, þó hann hafi lent upp á kant við fyrrverandi forystu íþróttahreyfingarinnar.Ég hef nú verið að takast á við Körfuknattleikssambandið en þeir eru alveg hættir að vera með stæla og eru bara farnir að vera almennilegir. Svo er þetta borgin, það koma allir í röð. Þegar þú ætlar að breyta einhverju þá þarftu að benda á það sem betur má fara. Menn eru bara í engu tilfinningalegu formi til þess að takast á við það. Það virðist alltaf vera efst í leikjabókinni að ganga enn lengra. En þegar þú byggir rök þín þarf ekki mikið til að sýna fram á að keisarinn er ekki í neinum fötum.“

Narrative Intelligence Brief

This article was published by RÚV, a source frequently categorized with a lean left bias based in Iceland. Our narrative intelligence engine continuously monitors coverage from this outlet to track framing, bias, and rhetorical patterns. Our initial algorithmic scan of this specific piece did not flag high-confidence rhetorical techniques, suggesting a generally straightforward reporting style or neutral framing. By understanding the editorial perspective of RÚV, readers can better contextualize the information presented and compare it across our broader media matrix to find the real narrative.

Analysis Methodology
This narrative analysis was generated using the CoDataLab Global Intelligence Engine. Our proprietary AI scans thousands of cross-border sources to identify sentiment patterns, framing techniques, and potential media bias. While AI provides the data-driven foundation, our objective is to empower readers with additional context beyond the standard headline.The content displayed above is a structured summary designed for rapid information processing. For the full original report, please visit the source outlet.

How other outlets are covering this story

Compare narratives across 4 related reports from 4 sources. Real Narrative News aggregates the coverage spectrum so you can see who emphasises what — bias tags reflect the outlet, not the story.

Coverage bias distribution

4 sources

Left 50%

Center 50%

Right 0%


Topics:

World · 3
Politics · 1

Related coverage for "Dregur Aþenu úr úrvalsdeildinni og segir borgina vanrækja efra Breiðholt": DV — Arnar Þór leggur fram hugmynd: „Patrekur veit augljóslega ekkert um málefnið“. Iceland FP — Bandero yfirgefur Ísland. Vísir — Dregur úr vætu síð­degis og hiti að á­tján stigum. RÚV — HM-vaktin: Portúgal þarf að hrista af sér slenið