Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur
World

Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur

April 6, 2026
RÚV
Scroll

Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu byltingarvarðarins sem birtist á samfélagsmiðlinum Telegram.Majid Khademi tók við forystu leyniþjónustunnar síðasta sumar eftir að forveri hans, Mohammad Kazemi, var drepinn í 12 daga átökum Írans og Ísraels síðasta sumar.Ekkert útlit er fyrir að átökum linni á næstunni.

Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið Írönum frest þar til annað kvöld til að opna fyrir skipaflutning um Hormússund; annars ætli Bandaríkjaher að gjöreyða orkuinnviðum og brúm í Íran.Íranski herinn sagði að árásum á borgaralega innviði í Íran yrði svarað með reiðarslagi.Friðarumleitanir hafa litlu skilað til þessa. Heimildir bandaríska miðilsins Axios herma að litlar líkur séu á að sátt náist um að leggja niður vopn; en að erindrekar Bandaríkjanna og Írana, auk milligöngumanna, reyni eftir fremsta megni að ná saman um skilmála 45 daga vopnahlés.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More