Advertisement
Yfirgnæfandi óánægja með borgarstjóra, meirihluta og minnihluta
World

Yfirgnæfandi óánægja með borgarstjóra, meirihluta og minnihluta

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Borgarbúar eru sem fyrr óánægðir með kjörna fulltrúa sína, samkvæmt nýlegum Borgarvita Maskínu. Rúmlega helmingur telur borgarstjóra, meirihlutann í borgarstjórn og minnihlutann í borgarstjórn standa sig illa. Innan við fimmtungur telur þá hafa staðið sig vel.Niðurstöðurnar eru í samræmi við þróun sem sjá má í fyrri könnunum Maskínu sem kannað hafa afstöðu borgarbúa til borgarstjórnar frá því í desember 2022.Ánægja með borgarstjóra hefur á þessum tíma minnkað nokkuð jafnt og þétt.

Yfirgnæfandi óánægja með borgarstjóra, meirihluta og minnihluta

Hún hefur farið úr því að 28 prósent lýstu ánægju með störf Dags B. Eggertssonar í fyrstu könnuninni í árslok 2022 (og 25 prósent í lok borgarstjóratíðar hans) í að 17 til 23 prósent voru ánægð með störf Einars Þorsteinssonar og 16 til 20 prósent með störf Heiðu Bjargar Hilmisdóttur.Nú segjast 17 prósent ánægð með störf borgarstjóra en 57 prósent óánægð og hefur óánægjan aldrei verið meiri í þessum könnunum. Áður hafði óánægjan með störf borgarstjóra mest mælst 55 prósent þegar Dagur B. var borgarstjóri en minnst 28 prósent þegar Einar Þorsteinsson hafði nýlega tekið við; óánægjan með hans störf átti eftir að aukast í 44 prósent.Aðeins 40 prósent Samfylkingarfólks segir borgarstjóra hafa staðið sig vel.16 prósent segjast ánægð með störf meirihlutans og hefur það hlutfall aðeins einu sinni verið lægra á kjörtímabilinu, 15 prósent í ágúst 2023. Ánægjan hefur sveiflast á bilinu 15 til 22 prósent. Óánægjan með meirihlutann hefur aðeins einu sinni mælst meiri. 58 prósent eru óánægð í nýjustu könnuninni en í ágúst 2023 lýstu 59 prósent sömu skoðun.Samfylkingarfólk er ánægðast með störf meirihlutans, 47,7 prósent þess telja hann hafa staðið sig vel.Minnihlutinn í borginni græðir ekki á óánægjunni með meirihlutann því enn færri telja hann hafa staðið sig vel. Aðeins 11 prósent lýsa þeirri skoðun í nýjustu könnuninni og á kjörtímabilinu öllu hafa aldrei fleiri en 16 prósent sagt minnihlutann standa sig vel, í Borgarvita Maskínu. Óánægjan með störf minnihlutans hefur aldrei mælst meiri. 54 prósent segja hann hafa staðið sig illa. Það hlutfall hefur verið á bilinu 41 til 49 prósent fram að þessari síðustu könnun.Sjálfstæðismenn eru ánægðastir með störf minnihlutans í borgarstjórn, þó telja aðeins 29,5 prósent þeirra að minnihlutinn hafi staðið sig vel. Miðflokksmenn, sem náðu ekki inn í borgarstjórn síðast, eru næstánægðastir með minnihlutann, 17,7 prósent þeirra telja minnihlutann hafa staðið sig vel.Könnunin var gerð 16. til 19. mars og svöruðu 1.173 íbúar í Reykjavík sem voru orðnir átján ára eða eldri þegar könnunin fór fram.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More