Yfir ein milljón manna á flótta í Líbanon
March 28, 2026
RÚV
Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon síðan í byrjun mánaðar og ein milljón manna hefur lagt á flótta. Öll skýli eru full og fólk býr víða á götunni eða hefst við í bílum sínum, jafnvel fjölskyldur með börn.Ísraelsher hefur drepið yfir þúsund manns og sært yfir þrjú þúsund. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum er hvergi í Líbanon öruggan stað að finna. Fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, Karolina Lindholm Billing, segir að staðan sé grafalvarleg og að hætta á hamförum sé mikil.
Ísraelar hafi nýlega gert árásir á þéttbýl hverfi í höfuðborginni Beirút þar sem fólk hafi leitað skjóls. Þá hafa þeir skipað fólki að rýma suðurhluta landsins. Líbanir óttast að Ísraelar ætli að taka stjórnina á landshlutanum til framtíðar og að fólk geti aldrei snúið aftur heim til sín.Ísraelar og Bandaríkjamenn sagðir hafa drepið 1.500 manns í ÍranFjórar vikur eru síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran og réðu æðstaklerk landsins af dögum. Um 1.500 manns hafa verið drepnir í Íran, samkvæmt stjórnvöldum. Íransher hefur einnig drepið fólk í gagnárásum á nágrannaríkin, meðal annars í árásum á herstöðvar Bandaríkjanna.Hútar gerðu árásir á ÍsraelHútar gerðu í nótt árás á hernaðarlega mikilvæg skotmörk í Ísrael. Þetta voru fyrstu árásir þeirra síðan stríðið hófst um síðustu mánaðamót. Ekki hefur verið tilkynnt um skemmdir eða manntjón og stöðvaði loftvarnakerfi Ísraels sprengjurnar.Hútar, sem eru bandamenn Írana, segjast ætla að halda árásum áfram. Þeir hafa aðsetur í Jemen við mikilvæga siglingaleið um Rauðahaf.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.