Yfir 27.000 erlendir ríkisborgarar í hersveitum Rússa
World

Yfir 27.000 erlendir ríkisborgarar í hersveitum Rússa

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Borin hafa verið kennsl á 27.407 erlenda ríkisborgara sem hafa barist með hersveitum Rússa í Úkraínu. Það er aukning frá því í nóvember þegar búið var að bera kennsl á 18.000 erlenda ríkisborgara í hersveitum Rússa, samkvæmt frétt úkraínska fjölmiðilsins Kyiv Independent.Rússar eru sagði hafa byggt upp umfangsmikið ráðningarkerfi fyrir herinn utan Rússlands frá árinu 2023 til að bæta upp fyrir mikið mannfall í hersveitum sínum.

Yfir 27.000 erlendir ríkisborgarar í hersveitum Rússa

Erlendir ríkisborgarar frá 135 löndum hafa skráð sig í rússneska herinn og stór hluti þeirra er sagður koma frá löndum í Asíu. Ríkisborgarar landa í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum hafa einnig barist í Úkraínu, sem og ríkisborgarar frá löndum innan Evrópusambandsins.Upplýsingarnar eru teknar saman af samhæfingarstöð fyrir meðferð stríðsfanga í Úkraínu, Coordination Headquarters for the Treatment of Prisoners of War. Starfsfólk samhæfingarstöðvarinnar byggir þær á samtölum við erlenda stríðsfanga sem teknir hafa verið til fanga af úkraínska hernum.Hundruð erlendra ríkisborgara sem barist hafa með Rússlandsher eru stríðsfangar Úkraínu og fjöldi þeirra heldur áfram að aukast. Í hverri viku tekur úkraínski herinn 1–3 hermenn til fanga sem eru erlendir ríkisborgarar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More