Vonar að tónleikar Kaleo fái fleiri Íslendinga til að skunda á Þingvöll

Vonar að tónleikar Kaleo fái fleiri Íslendinga til að skunda á Þingvöll

Hljómsveitin Kaleo heldur stórtónleika á Þingvöllum í júní. Gert er ráð fyrir því að 20 þúsund manns sæki tónleikana. Þjóðgarðsvörður segir allar ráðstafanir verða gerðar til að koma í veg fyrir röskun í Þjóðgarðinum. Kaleo hélt tónleika í Vaglaskógi í fyrrasumar og tónleikagestir voru hátt í tíu þúsund.Einar Á. E. Sæmundssen þjóðgarðsvörður segir þetta í fyrsta sinn sem einkaviðburður af þessum toga verði haldinn á Þingvöllum en að ýmiss annars konar hátíðarhöld hafi áður farið fram í þjóðgarðinum, til að mynda Kristnihátíðin árið 2000 þar sem um 25 þúsund manns komu saman.Hann segir það þegar hafa verið til umræðu innan þjóðgarðsins að halda viðburði til að fá fleiri Íslendinga á Þingvelli, sem hafi kannski ekki komið áður. Beiðni Kaleo um tónleikahald í þjóðgarðinum hafi því verið kærkomin.Þetta getur opnað svona nýja sýn á Þingvelli, að fólk geti komið til Þingvalla og upplifað Þingvelli á öðrum forsendum en að eingöngu velta fyrir sér landreki og lögöngu eða lögsögumönnum.“Setjum kröfurnar í botnHann segir þjóðgarðinn að sjálfsögðu gera ráðstafanir til að vernda landsvæðið. Viðburðurinn sjálfur fari fram á tveimur grasflötum fyrir neðan Öxárfoss og þess verði gætt að fólk gangi á þar til gerðum göngustígum og sé ekki í óspilltri náttúru. Hann bendir þó á að mikill fjöldi fólks heimsæki Þingvelli á ári hverju og að miklar umbætur hafi verið gerðar á innviðum þar á undanförnum árum. Starfsmenn þjóðgarðsins hafi því talsverða reynslu og góða yfirsýn yfir hvernig fólk flæði um svæðið.Til Þingvalla koma á hverju ári ein og hálf milljón ferðamanna og þeir eru líka að koma hingað á vegum einkaaðila, ferðaþjónustunnar og á hverjum degi yfir hásumarið erum við kannski að taka á móti tíu þúsund manns,“ segir Einar.Við setjum allar kröfurnar í botn gagnvart viðburðarhaldaranum og erum í góðu samstarfi við hann, og það verða sett upp virk öryggisráð undir forystu lögreglunnar á Suðurlandi.“

March 28, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left