Vonar að Frakkland verði fyrst innan ESB til þess að banna samfélagsmiðla fyrir börn
April 1, 2026
RÚV
Emmanuel Macron forseti Frakklands bindur vonir við að landið verði með þeim fyrstu innan Evrópusmabandsins til þess að meina börnum yngri en 15 ára aðgang að samfélagsmiðlum.Frumvarpið er ekki óumdeilt og hafa efri og neðri deildir franska þingsins ekki enn sammælst um eina nálgun. Neðri deild franska þingsins hefur þegar samþykkt frumvarpið en öldungadeild þingsins tekur frumvarpið til skoðunar eftir viku.
Þegar hafa þeir vakið athygli á nokkrum atriðum sem myndu tefja afgreiðslu málsins á þinginu.Vilja greina skaðlega samfélagsmiðla frá öðrumUndirnefnd á vegum öldungadeildarinnar hefur meðal annars lagt til að notast verði við tveggja þrepa kerfi, þannig að greinarmunur verði gerður á miðlum sem eru taldir skaðlegir líkamlegum, andlegum eða siðferðislegum þroska barns og öðrum samfélagsmiðlum.Í endurskoðaðri útgáfu frumvarpsins eru alfræðirit á netinu og fræðslumiðlar undanskildir.Þegar hafa svipaðar reglur tekið gildi í Ástralíu og Indónesíu. Í desember varð Ástralía fyrsta land í heimi til að banna TikTok, YouTube, Snapchat og aðra miðla börnum sem eru undir 16 ára aldri. Fjarlægi fyrirtækin ekki aðganga í eigu þeirra sem eru yngri en 16 ára þeir yfir höfði sér háar sektir.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.