Vinstri sinnaðir leiðtogar hittast á fundi til varnar lýðræðinu
0
World

Vinstri sinnaðir leiðtogar hittast á fundi til varnar lýðræðinu

April 18, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Á fjórða þúsund leiðtogar af vinstri væng stjórnmálanna, hvaðanæva að úr heiminum, hittast í spænsku borginni Barcelóna í dag og ræða viðbrögð við þeirri ógn sem lýðræðinu kann að stafa af uppgangi öfgahægriafla og valdboðshyggju.Ráðstefnan ber yfirskriftina Fundur til varnar lýðræðinu“. Spánski forsætisráðherrann Pedro Sanchez stjórnar ráðstefnunni ásamt Luiz Inacio Lula da Silva Brasilíuforseta.

Vinstri sinnaðir leiðtogar hittast á fundi til varnar lýðræðinu

Þeir hafa báðir verið afar gagnrýnir á stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þótt Lula segi ráðstefnunni ekki sérstaklega beint gegn honum.ins vegar verði að sporna fótum af alefli við öllu bakslagi lýðræðisins. Báðir segja ætlunina vera að finna leiðir til að styrkja lýðræðisferli í heiminum og sameina framfarasinnuð öfl. Evrópskir leiðtogar lengst til hægri halda fund í Mílanó í dag.Um það bil þrjú þúsund núverandi og fyrrverandi ráðamenn, borgarstjórar, fulltrúar verkalýðsfélaga og vísindamenn frá fjörutíu löndum taka þátt í ráðstefnunni í Barcelona, þeirra á meðal Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, Claudia Sheinbaum Mexíkóforseti og Cyril Ramaphosa forseti Suður-Afríku.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More