Vill að Taívan og Kína vinni saman að því að fyrirbyggja stríð
April 10, 2026
RÚV
Leiðtogi stjórnarandstöðuflokks í Taívan, Cheng Li-wun, segir að stjórnvöld í Kína og Taívan eigi að vinna saman til að koma í veg fyrir stríð. Li-wun er í heimsókn í Kína og fundaði með forseta Kína Xi Jinping í dag.Hún sagði að þjóðirnar ættu að vera hafnar yfir pólitísk átök og leita lausna til að fyrirbyggja og koma í veg fyrir stríð. Þannig gæti Taívan-sund orðið fyrirmynd annarra þjóða sem friðsamleg deilulausn.Jingping sagði að hann hefði fulla trúa á því að Kínverjar og Taívanar yrðu sameinaðir.
Hann sagði að þjóðirnar beggja vegna sundsins væru að færast nær og það væri óhjákvæmilegur hluti af sögunni.Li-wun er fyrsti leiðtogi Kuomintang-flokksins til að heimsækja Kína í áratug. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að vera of hliðholl stjórnvöldum í Kína. Stjórnvöld í Kína hafa heitið því að taka yfir Taívan og hafa ekki útilokað að beita til þess hervaldi.Kínverski herinn hefur aukið viðveru sína nærri Taívan og Taívan-sundi og heldur þar reglulegar heræfingar með herþotum og herskipum. Samskipti Kína og Taívan hafa versnað síðan Lai Ching-te var kosinn forseti árið 2024 en stjórnvöld í Peking álíta hann aðskilnaðarsinna.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.