0
„Viljum ekki þessa eitrun stéttaskiptingar og misskiptingar“
April 23, 2026
Posted 2 hours ago by
Leiguverð hefur hækkað mun meira á Íslandi en hinum Norðurlöndunum síðasta áratug og samkvæmt HMS borga aðfluttir leigjendur hærri leigu þrátt fyrir að velja sér að jafnaði minni íbúðir.Stjórn Eflingar hefur sent stjórnvöldum tillögur til að bregðast við stjórnlausum hækkunum á leigumarkaði; til að mynda að banna mánaðarlegar hækkanir og að sett verði þak á árlegar hækkanir.
Dæmi eru um að 70 prósent ráðstöfunartekna félagsmanna Eflingar fari í leigu.Telja að hömlur á leigumarkaðinn lækki verðbólguSólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir tillögurnar mikilvægt innlegg í þá mynd sem er að teiknast upp. Að mögulega muni forsendur kjarasamninga bresta vegna þessa að verðbólgan er svo há,“ segir hún.Ef að farið verður þá leið sem við viljum mun það, teljum við fullvíst, lækka verðbólguna. Eins verður það auðvitað líka bara mikilvægt innlegg í samtalið næsta haust,“ segir SólveigInnflutt vinnuafl verði fyrir tvöföldu arðrániÓboðleg staða á leigumarkaði bitni sérstaklega harkalega á innflytjendum sem hingað koma til að vinna. Sá hópur verði fyrir tvöföldu arðráni, segir Sólveig. Þau vinni oft við mjög erfiðar aðstæður, njóta jafnvel ekki uppsagnarverndar og eiga á meiri hættu á að verða fyrir launaþjófnaði og kjarasamningsbrotum.Svo þarf það að borga það sem það þó nær að vinna sér inn að langstærstum hluta til leigusalanna. Sem gerir það að verkum að líf þessa fólks er einfaldlega biðin frá einum mánaðamóta til þeirra næstu og það getur ekki séð almennilega fyrir sér og börnunum sínum,“ segir hún.Rannsóknir hafi sýnt að slæm staða á leigumarkaði skerði lífsgæði fólks sem við hana býr.Við búum í litlu samfélagi. Hér búa um 400.000 manns. Við viljum ekki þessa eitrun stéttaskiptingar og misskiptingar. Hún hefur auðvitað mest áhrif á þá sem fyrir henni verða en hún hefur á endanum líka áhrif á okkur öll sem hérna búum,“ segir Sólveig Anna.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.