Vilja draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok
World

Vilja draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok

March 29, 2026
RÚV
Scroll

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir verðbólgu og óvissu vegna hækkunar olíuverðs áhyggjuefni. Stjórnvöld hyggjast draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok.Verðbólga mælist 5,4 og hefur aukist um 1,7 frá því í janúar. Hækkun olíuverðs í skugga stríðsátaka hefur þar talsvert að segja – og forsætisráðherra segir óvissu framundan.Það liggur ekkert almennilega fyrir hvenær við munum sjá frekari opnanir á Hormússundinu en við verðum auðvitað að tryggja það að við höfum þá stjórn á því sem að við getum haft stjórn á.

Vilja draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok

Þess vegna lögðum við alla áherslu á að skila afkomu réttum megin við núllið í nýjustu fjármálaáætlun,“ segir Kristrún í viðtali við fréttastofu.Ríkisstjórnin vill draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok. Forsætisráðherra telur ekki skynsamlegt að koma til móts við heimilin með því að lækka virðisaukaskatt á matvöru.Varhugavert að lækka virðisaukaskatt á matvöruDaði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í vikunni að ekki kæmi til greina að lækka virðisaukaskatt á matvöru. Forsætisráðherra segir varhugavert að fara í svo yfirgripsmiklar aðgerðir.Virðisaukaskatturinn er auðvitað stærsti staki skattstofn ríkisins. Um leið og þú ferð að gefa eftir þessar skatttekjur þá auðvitað rýrirðu afkomu ríkisins sem hefur þá þensluhvetjandi áhrif á umhverfið. Þetta eru líka ekki mjög sértækar aðgerðir, það eru allir sem fá þessa aukagreiðslu ef svo má segja, eða afslátt, þannig að ég hef ekki verið hlynnt því að fara í slíkar aðgerðir,“ segir Kristrún.Kílómetragjaldið lengi legið fyrirRíkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir auknar álögur á heimilin í því efnahagsástandi sem nú er, til að mynda kílómetragjaldið. Kristrún segir þetta hafa verið í áætlunum fyrri ríkisstjórna og legið lengi fyrir.Og var alltaf grunnurinn að því að við gætum staðið undir innviðunum og vegakerfinu okkar og við þurftum að breyta um takt vegna þess að að olíugjaldið var ekki lengur að skila því sem það gerði áður. Tímasetningin hefði mögulega getað verið önnur en það breytir því ekki að það hefði líka rýrt afkomu ríkissjóðs og þar með verið þensluhvetjandi annars staðar.“Unnið sé að breytingum sem eigi að draga úr hve mikil áhrif verðtrygging hafi á vaxtabyrði heimilanna.Ég myndi segja að það væri kannski stærsta einstaka aðgerðin, sem við viljum gjarnan sjá komast í gagnið fyrir næstu áramót, að minnka smám saman vægi verðtryggingar í hagkerfinu. Vegna þess að hún brenglar að að einhverju leyti verðlagið, vegna þess að stýrivextir þeir þurfa að vera hærri fyrir vikið vegna þess að fólk er svolítið að flýja vextina og gera það að verkum að við erum fastari í hærri vöxtum en ella,“ segir forsætisráðherra.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More