Advertisement
Viðvörun um allt land og búist við samgöngutruflunum annan í páskum
World

Viðvörun um allt land og búist við samgöngutruflunum annan í páskum

April 4, 2026
RÚV
Scroll

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið á mánudag, annan í páskum, frá því snemma morguns fram á aðfaranótt þriðjudags. Varað er við austan stórhríð. Búist er við 18-28 metrum á sekúndu, hvassast verður syðst, en búist við hægari vindi norðanlands fram eftir degi.Snjókoman verður mest sunnan- og austantil, áður en fer að hlýna smám saman með rigningu sunnantil.Veðurstofan undirstrikar að búast megi við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum.

Viðvörun um allt land og búist við samgöngutruflunum annan í páskum

Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám, en búast má við fjölmörgum á ferðinni á heimleið eftir páska.Samgöngutruflanir hafa mestar verið á Austurlandi í dag. Upp úr hádegi var opnað um Fjarðarheiði og Vatnsskarð eystra. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er þæfingur þar og vegirnir einbreiðir á köflum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More