Viðskiptavinir indó yfir hundrað þúsund

Viðskiptavinir indó yfir hundrað þúsund

Viðskiptavinir indó sparisjóðs eru orðnir yfir 100.000 en þeim hefur fjölgað um 30.000 á árinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá indó. Þar segir að tekjur félagsins hafi aukist um rúmlega 30 á síðasta ári og verið tæpir 2,4 milljarðar. Tap var þó á rekstrinum sem nam 517 milljónum.Þrátt fyrir taprekstur er lausafjárstaða indó sterk enda eru fjárfestingar sjóðsins fyrst og fremst í ríkistryggðum verðbréfum og innlánum hjá Seðlabanka. Reikna má með að indóar hafi alls sparað 1.349 milljónir á síðasta ári sem annars hefðu runnið til banka í formi gjalda eða álags á kortafærslur,“ segir í tilkynningunni.Kortavelta hjá indó jókst um 57 á milli ára en hlutdeild sparisjóðsins í debetkortaveltu var 17 á síðasta ári. Þá var hlutafjáraukning tryggð í vikunni.Áframhaldandi fjölgun viðskiptavina, aukning í notkun á þjónustum ásamt aukinni ánægju samkvæmt mælingum eru frábærar fréttir, ekki síst þar sem áhersla síðasta árs var ekki á markaðssókn heldur styrkingu innviða og undirbúning fyrir næstu stóru skref. Áskorendabankar hafa jafnan þurft um 7-10 ár til að ná jafnvægi í rekstri en við sjáum enn fram á að með þessum viðtökum munum við ná þeim tímamótum talsvert fyrr,“ er haft eftir Tryggva Birni Davíðssyni, framkæmdastjóra indó, í fréttatilkynningunni.

March 28, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left