Viðræður við ESB: Aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?
0
World

Viðræður við ESB: Aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?

April 17, 2026
Scroll

Posted 1 hour ago by

Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður? Þessari spurningu er varpað fram á Vísindavefnum og henni svarar Margrét Einarsdóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.Margrét segir ekki þörf á neinni aðlögun til að uppfylla svonefnd grunnskilyrði Evrópusambandsins í tilviki Íslands og því ekki tilefni til að kalla viðræðurnar annað en aðildarviðræður.Í tilvikum kommúnistaríkja sem höfðu hug á að ganga í ESB eftir fall kommúnismans hafi sagan aftur á móti verið önnur.

Viðræður við ESB: Aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?

Fyrrum kommúnistaríki hafi þurft að ráðast í talsverða aðlögun í undirbúningi umsókna sinna og því segir Margrét ef til vill réttnefni að kalla aðildarviðræður þeirra aðlögunarviðræður.Íslenskt samfélag grundvallist nú þegar á sömu gildum og ESB, svo sem lýðræði, vernd mannréttinda og virku markaðshagkerfi. Í aðildarviðræðum Íslands við ESB, sem hófust árið 2010, hafi íslensk stjórnvöld og ESB náð saman um að Ísland myndi hvorki ráðast í breytingar á opinberum stofnunum né lagabreytingar sem af aðild leiddu fyrr en að afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu.Kommúnistaríkin sem vildu ganga í ESB eftir fall kommúnismans hafi aftur á móti þurft að aðlaga sig að regluverki ESB til að fá að sækja um, eftir að leiðtogaráð ESB ákvað að umsóknarríki þyrftu að uppfylla ákveðin grunnskilyrði, svokölluð Kaupmannahafnarviðmið, árið 1993.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More