Advertisement
Víða þungfært vegna snjókomu
World

Víða þungfært vegna snjókomu

April 4, 2026
RÚV
Scroll

Von er á áframhaldandi snjókomu og éljagangi á Norðaustur- og Austurlandi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er kalt í veðri miðað við árstíma og verður hiti um eða undir frostmarki í dag.Á morgun, páskadag, er útlit fyrir norðaustan 8-13 m/s með éljum norðan-og austanlands. Um landið suðvestanvert verður áfram svalt en þó hægari vindur, þurrt og möguleiki á sólarköflum.Á mánudag gera spár ráð fyrir að djúp lægð nálgist úr suðri með vaxandi austanátt.

Víða þungfært vegna snjókomu

Víða verður stormur eða rok á sunnanverðu landinu eftir hádegi og slydda eða snjókoma. Veðrið færist síðar einnig norður yfir heiðar. Um kvöldið hlánar með rigningu og eru þau sem hyggja á ferðaveður þennan dag hvött til að fylgjast með veðurspám.Áframhaldandi ófærð fyrir austanÁ höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðvesturlandi gætir snjóþekju, hálku eða hálkubletta á mörgum vegum. Þungfært eða þæfingur er í Ísafjarðardjúpi og snjóþekja eða hálka víða á Vestfjörðum og á Vesturlandi.Fjarðarheiði er lokuð en mokstur er hafinn. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði. Fagridalur er opinn en þungfær. Vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði er lokaður og mun mokstur hefjast þar um klukkan átta. Ófært er á Hólaheiði, Raufarhafnarvegi, Brekknaheiði og Sandvíkurheiði.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More