„Við viljum lýðræði ótengt trúarbrögðum“
April 8, 2026
RÚV
Leó Karenarson Amiri er frá Íran en hefur búið á Íslandi í rúm sjö ár. Hann segir afar erfitt að geta ekki tekið upp símann og heyrt í fólkinu sínu í þessu ástandi.Þetta er svo erfitt. Ástandið er skelfilegt og einræðisstjórnin hefur slökkt á Internetinu. Íran hefur verið án nets í 40 daga,“ segir Leó.Á þessum 40 dögum hefur hann aðeins náð að tala við fjölskyldu sína tvisvar, meðan Bandaríkin og Ísrael hafa látið sprengjum rigna yfir landið.
Það eru leiðir til þess að ná sambandi við umheiminn en þær eru dýrar og flóknar og alls ekki á allra færi.Um það bil tveir eða þrír af hverjum 10.000 ná sambandi við netið í gegnum hjáleiðir.“Leó hefur ekki mikla trú á að vopnahléið haldi - sökum þess að skilyrðin verði ekki samþykkt.Það vill enginn að það sé stríð en því miður höfum við lifað við einræðisstjórn. Íranska þjóðin vill stjórnarskipti,“ segir Leó.Íranar vilja lýðræði en árásir á innviði landsins eru ekki leiðin áfram, segir maður frá Íran sem býr hér á landi. Hann hefur aðeins náð sambandi við fjölskyldu sína tvisvar frá því stríðið hófst í lok febrúar.Tveir óvinir að berjast í okkar landiOg til þess þurfi þau aðstoð. Fjölmenn mótmæli fyrr á þessu ári hafi verið barin niður af miklu harðræði og talið að stjórnvöld hafi myrt tugi þúsunda.Bandaríkin komu til að styðja Íran. En ég segi alltaf, ef Trump hefur tíu ástæður til að ráðast á Íran, þá er aðstoð við írönsku þjóðina kannski sú ellefta. Fyrir mér er eins og tveir óvinir séu að berjast hver við annan í okkar landi,“ segir hann.Árásir á innviði og orkuver landsins sé ekki leiðin áfram.Við viljum lýðræði ótengt trúarbrögðum. Allt á að vera lýðræðislegt. Við höfum haft einræði í 47 ár og höfum fengið nóg. Fólkið verður að fá að velja sjálft og kjósa um sína framtíð,“ segir hann.Leó hefur búið hér í sjö og hálft ár og finnur mikinn stuðning frá samfélaginu.Fólk faðmar mig og spyr um fjölskylduna mína. Ég er mjög þakklátur því og ég veit að aðrir Íranar eru það líka. Mig langar að segja takk fyrir: Íslendingar, takk fyrir.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.