„Við verðum auðvitað að taka þessi orð forsetans alvarlega“
World

„Við verðum auðvitað að taka þessi orð forsetans alvarlega“

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Bandaríkjaforseti reynir að neyða Írana að samningaborðinu með hótunum á samfélagsmiðlum, að mati prófessors í sagnfræði. Hótanir Trumps í dag hafa vakið heimsathygli.Verðum að taka þessi orð alvarlegaDonald Trump Bandaríkjaforseti hóf færslu sína á Truth Social í dag svona: Heil siðmenning deyr í kvöld og snýr aldrei aftur.“ Hann sagðist ekki vilja að það gerðist en líklega yrði af því.Átök Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófust í lok febrúar og þrátt fyrir friðarumleitanir er ekki útlit fyrir að þeim linni á næstunni.

„Við verðum auðvitað að taka þessi orð forsetans alvarlega“

Trump hefur gefið Írönum frest þar til í kvöld til að semja og opna Hormússund.Á vissan hátt er hann í sjálfu sér að reyna að neyða Írana til þess að semja við sig og Íranar hafa ekki sýnt neinn sérstakan áhuga á að semja við Trump því þeir skynja það að Trump er kominn hálfpartinn út í horn,“ segir Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði.Prófessor í sagnfræði segir að láti Bandaríkjaforseti af hótunum sínum í garð Írans verða sé hann að fremja stríðsglæpi. Taka verði orð forsetans alvarlega.Trump sé viðkvæmur fyrir áhrifum stríðsins, svo sem hækkandi eldsneytisverði og hækkun á verði áburði. Íranar hafi spilin að mörgu leyti í sínum höndum. Þeir þurfi ekki að óttast þingkosningar eða álit almennings.En við verðum auðvitað að taka þessi orð forsetans alvarlega, hann er forseti Bandaríkjanna. Og hvað hann meinar með þeim á eftir að koma í ljós en ef hann lætur verða af því sem hann er búinn að hóta má segja að Bandaríkjamenn séu búnir að fremja, það eru allir sammála um það að þar með eru Bandaríkjamenn að fremja stríðsglæpi.“Trump hafi litlar áhyggjur af því. Af því að það eina sem stýrir hans gjörðum er hans eigin siðferðiskennd og það eru margir sem hafa áhyggjur af því ef siðferðiskennd Trump á að stýra gjörðum Bandaríkjamanna því að hann hefur ekki endilega sýnt sig sem sérstaklega siðferðilega þenkjandi mann.“Ekki ljóst hvernig Trump kemur sér úr þessari stöðuTrump hefur um nokkurra vikna skeið haft í hótunum við Írana, oftar en ekki hefur hann fært fresti eða tímamörk. Guðmundur telur erfitt fyrir Trump að gera ekkert núna því hann sé búinn að hafa í hótunum svo oft.Það getur verið að Íranar bakki eitthvað og opni á að semja, við verðum bara að sjá til með það. En ef hann lætur kné fylgja kviði þá er þetta alveg gríðarlega alvarlegt mál.“Trump hafi gefið sig út fyrir að vera góður samningamaður en hafi ekki sýnt það í verki sem forseti.Hann er duglegur við það að neyða fólk til þess að komast inn á sitt band. Bandaríkjamenn hafa mörg vopn, þau eru bæði gríðarlega stór markaður sem er mikilvægur fyrir heiminn allan, þannig að hann hefur getað sett á tolla og neytt þannig þjóðir til þess að beygja sig undir hans vilja. Hann er með gríðarlega sterkan her en honum hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að semja, að hluta til í þessu tilviki hefur hann í sjálfu sér ekki almennileg samningsmarkmið.“Íranar hafi engan sérstakan áhuga á að semja nema þeir fái tryggingar fyrir því að samningar haldi og Bandaríkjamenn og Ísraelar ráðist ekki aftur á landið eftir nokkra mánuði.Þannig að ef þú ert góður samningamaður í þessum alþjóðlegu samskiptum þá verður þú að gjöra svo vel að sýna fram á að þér sé treystandi. Trump hefur ekki gert það. Þetta er staðan sem við erum í og hann er búinn að koma sér í þessa stöðu og það er ekki alveg ljóst hvernig hann kemur sér út úr henni.“Ættu stjórnvöld á Íslandi að beita sér í þessu máli?Máttur Íslands er enginn. Ég held að við ættum að reyna að halda okkur eins fjarri þessum deilum og hægt er. En auðvitað eigum við eftir að koma til með að finna fyrir þessum deilum. Þessar deilur koma til með að hafa áhrif á allan heiminn. Þetta eru bara mjög alvarlegir hlutir sem hafa gerst og enn einn votturinn um það að menn eiga kannski að hugsa aðeins áður en þeir rjúka inn í svona stríð.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More