„Við getum ekki vísað á neitt, það er ekkert að vísa á“
0
World

„Við getum ekki vísað á neitt, það er ekkert að vísa á“

April 13, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Foreldrahús hættir starfsemi sinni 1.maí. Framkvæmdastjóri segir ekkert úrræði taka við og skjólstæðingar séu í áfalli.Foreldrahús er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda.Úrræðið hefur verið til í 40 ár og þangað leita um 500 börn, og foreldrar þeirra, árlega, með tilvísun frá barnaverndarþjónustum eða á eigin vegum.Ráðgjafamiðstöðin Foreldrahús lokar 1.maí.

„Við getum ekki vísað á neitt, það er ekkert að vísa á“

Framkvæmdastjóri segir orsökina vera áhugaleysi stjórnvalda á úrræðinu og að skjólstæðingar séu í áfalli. Ekkert sambærilegt úrræði er í boði.Margra áratuga reynsla og traust að tapastBerglind Gunnarsdóttir Strandberg er framkvæmdastjóri Foreldrahúss.Hún segir foreldra leita í úrræðið eftir aðstoð, þegar kemst upp að börn þeirra séu byrjuð að fikta við eða nota vímuefni.Foreldrar geta leitað til Foreldrahúss bæði með tilvísunum frá barnaverndarþjónustum sveitarfélaga en líka á eigin vegum.Að mati Berglindar er mikill missir af því að úrræðinu verði lokað 1.maí. Margra áratuga reynsla og traust, sem byggt hafi verið upp, muni koma niður á þeim sem þurfa á aðstoð að halda.Og það er það sem er dýrmætast í allri þjónustu, það er traust. Að fólk upplifi það að vera mætt þar sem það er statt og fá úrlausn sinna mála.“Berglind segir markmiðið hjá Foreldrahúsi að valdefla foreldra, það sé mikilvægast að fá foreldra í samtal og styðja þau við að sinna börnum sínum sem séu í vanda.Áhugaleysi hjá stjórnvöldumForeldrahús hefur í gegnum tíðina fengið styrki frá ráðuneytum en Berglind segir ljóst að núverandi stjórnvöld hafi ekki áhuga á að reka það áfram.Starfsemin þurfi að vera niðurgreidd af ríkinu svo allir sem þurfa hafi að henni aðgang.Úrræðaleysi fyrir börn með fjölþættan vanda hefur lengi verið í umræðunni og Berglind segir það skjóta skökku við að loka úrræðinu.Hún segir að á meðan að nóg sé af úrræðum fyrir fullorðna með vímuefnavanda sé skortur á úrræðum fyrir börn í vanda, barnamál endi alltaf í síðasta sæti hjá stjórnvöldum.Í hverju siðmenntuðu ríki er eitthvað úrræði til og það er stutt undir það. Þetta er bara partur af því sem þarf að vera. Það er til nóg af framboði fyrir fullorðna, að minnsta kosti þrjú, sem eru styrkt af ríkinu og með samninga. Við erum ein og við erum að fara af markaði.“Ótrúlega þungbær staðaUm 60 milljónir kostar að reka Foreldrahús á ári í núverandi mynd.Í Foreldrahúsi er boðið upp á inngrip og langtímaúrræði, í formi göngudeildarúrræðis, auk uppeldis- og sálfræðiráðgjafar fyrir foreldra barna í vanda og fjölskylduráðgjöf.Þar eru nú hundruðir barna í þjónustu.Berglind segir lokunina þungbæra þar sem ekkert sambærilegt úrræði er í boði fyrir foreldra.Eitt það erfiðasta sem við höfum gert undanfarnar vikur er að láta fólk vita af þessari lokun. Því að örvæntingin og bara hræðslan, hvað tekur við? Við getum ekki vísað á neitt, það er ekkert að vísa á.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More