Vetrarfærð, snjókoma, slydduél og stinningskaldi
World

Vetrarfærð, snjókoma, slydduél og stinningskaldi

March 29, 2026
RÚV
Scroll

Engar veðurviðvaranir eru í gildi á landinu í dag, en í gær voru gular viðvaranir víða í gildi um slæma færð. Mörgum leiðum var lokað vegna þessa, meðal annars um Hellisheiði og Þrengsli á Suðurlandi og Bröttubrekku á Vesturlandi en búið er að opna vegina. Enn er lokað um Holtavörðuheiði en unnið er að mokstri.Vegir um Fjarðarheiði og Fagradal á Austurlandi eru lokaðir en verða opnaðir með morgninum.

Vetrarfærð, snjókoma, slydduél og stinningskaldi

Flestir fjallavegir á Vestfjörðum eru lokaðir og er ekki stefnt á mokstur á Dynjandisheiði í dag.Lægð yfir Grænlandssundi og austur af landinuBúast má við vestan og suðvestan kalda eða stinningskalda á sunnanverðu landinu með skúrum eða slydduéljum í dag, vegna lægðar yfir Grænlandssundi og austur af landinu.Norðan- og austanlands verður norðaustan 8-15 m/s með snjókomu en hægari vindur inn til landsins. Er líður á daginn snýst í norðvestan 10-18 m/s á Austurlandi og Austfjörðum. Hiti um eða yfir frostmarki.Á morgun verður suðvestan kaldi eða stinningskaldi með skúrum eða éljum en annað kvöld nálgast skil úr suðvestri með vaxandi suðaustanátt og snjókomu eða rigningu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More