Verktaki harmar atvikið
April 7, 2026
RÚV
Verktaki harmar það að bárujárnsplötur og fleiri lausamunir hafi fokið yfir á nærliggjandi hús þar sem verið er að rífa Fannborg 6 í Kópavogi. Hætta skapaðist fyrir íbúa og tjón, meðal annars brotin rúða, varð á húsum við Fannborg í óveðrinu í gær.Vinnueftirlitið segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að stofnunin sé meðvituð um atvikið og að hún sé með það til skoðunar.Hætta skapaðist fyrir íbúa og tjón varð á húsum við Fannborg þegar bárujárnsplötur fuku af framkvæmdasvæði í gær.
Sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs segir ábyrgð verktakans að tryggja öryggi. Vinnueftirlitið er með málið til skoðunar.Í tilkynningu frá Mannverki vegna atviksins segir að niðurrif við húsið hafi gengið hægar en gert hafi verið ráð fyrir í upphafi. Ljúka átti niðurrifi þaksins fyrir páska sem hafi ekki gengið eftir.Eftir að veður versnaði í gær fór verktaki á vettvang til að koma í veg fyrir frekara tjón. Aðstæður voru afar krefjandi og veður mun verra en ábyrgðaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Ljóst er að hætta skapaðist fyrir íbúa auk þess tjóns sem varð á nálægu húsi. Forsvarsmenn framkvæmdanna harma atvikið og munu gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkar kringumstæður skapist aftur,“ segir í tilkynningunni.Hætta skapaðist fyrir íbúa og tjón varð á húsum við Fannborg þegar bárujárnsplötur fuku af framkvæmdasvæði í gær. Sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs segir ábyrgð verktakans að tryggja öryggi. Vinnueftirlitið er með málið til skoðunar.Ábyrgðin hjá verktakaBæjaryfirvöld í Kópavogi funduðu með Mannverki í morgun ásamt Árkór ehf. sem er lóðarhafi. Við fórum yfir ábyrgð verktakans og það er auðvitað alveg skýrt að þetta er á hans ábyrgð að tryggja öryggi á verkstaðnum, segir Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs.Jón Bjarni Jónsson, formaður Byggiðnar – Félags byggingamanna, segir mikla mildi að ekki hafi farið verr.Það er alveg skelfilegt að horfa á þessar myndir sem birtust á samfélagsmiðlum og hættuna sem skapaðist af þessu,“ segir hann.Þetta er nefnilega mikilvægt í byggingarframkvæmdum, það eru öryggisatriði, og fokhætta er bara mikið öryggisatriði og þarna virðist hafa verið pottur brotinn,“ segir Jón sem telur að spurningar vakni einnig upp um þann fjölda af réttindalausum starfsmönnum sem eru á byggingarmarkaði.Hvort þarna hafi verið menn með fagþekkingu til þess að gæta að öryggisatriðum, því þetta á ekki að geta gerst svona,“ segir Jón.Samkvæmt Mannverki er áætlað að niðurrifi þaksins verði lokið á morgun, 8. apríl, og gert er ráð fyrir að lokið verði við að rífa húsið í þessari viku.Segir lífshættu hafa skapastHákon Gunnarsson, íbúi í Fannborg 7 og varabæjarfulltrúi í Kópavogi, sagði við fréttastofu fyrr í dag að talsverð hætta, jafnvel lífshætta, hefði verið á ferðum í gær. Hann sagðist hafa verið við vinnu þegar hann heyrði læti frá vinnusvæðinu og lausamunir verið farnir að fjúka, meðal annars bárujárnsplötur.Það fuku hlutir alveg yfir í Gjábakka, Fannborg 8, sem er í eigu Sunnuhlíðarsamtakanna. Brutu þar rúðu og það lentu líka hlutir við hliðina á aðalinnganginum þannig að það gekk töluvert mikið á.“Hákon segir að margir á svæðinu séu verktökunum reiðir. Að þeir sem standi í svona framkvæmdum skuli haga sér með þessum hætti. Við höfum reyndar bent á þetta lengi íbúar hér í kring. Þetta er átta ára gömul saga og hún er öll á sömu lund. Samtal og samráð eru ekki neitt.“Hákon segist telja að bæði verktaki og Kópavogsbær hefðu getað staðið sig betur í þessu máli.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.