Verkfalli farmanna aflýst í bili
World

Verkfalli farmanna aflýst í bili

April 9, 2026
RÚV
Scroll

Sjómannafélag Íslands hefur aflýst fyrirhuguðu verkfalli farmanna á þremur skipum Eimskipafélagsins. Verkfallið, sem tók til skipanna Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss, átti að standa yfir frá 12.-16. apríl.Boðað verkfall hafnarverkamanna dagana 13.–15. apríl stendur enn þar sem samningarnir tveir eru aðskildir.Að sögn Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélagsins, gerði Eimskipafélagið athugasemd við það að ekki hafi verið farið með verkfallið á borð ríkissáttasemjara.

Verkfalli farmanna aflýst í bili

Framkvæmdin hafi því verið ólögleg.Jónas segir það ekki hafa verið gert þar sem Eimskipafélagið hafi ýmist sagst vera annaðhvort færeyskt eða íslenskt fyrirtæki.Í þessu tilfelli snýst þetta um hvers lenskt Eimskipafélagið er. Allar götur frá árinu 2011 þegar við höfum staðið í kjaradeilum hafa þeir sagst vera Færeyingar en ekki Íslendingar. Nú hafa þeir snúið þessu í hina áttina,“ segir Jónas.Málið á borði ríkissáttasemjaraFulltrúar Sjómannafélagsins lögðu deiluna fyrir ríkissáttasemjara í morgun. Lítill árangur hefur náðst í deilunum fram til þessa, segir Jónas.Nú bíðum við eftir að ríkissáttasemjari boði okkur á fund og ef það gengur ekki þá boðum við verkfall aftur. Þeir eru ekkert að tala um að semja við okkur, þeir eru bara að skylmast,“ segir Jónas.Kjaraviðræður hafnarverkamanna eru þegar á borði ríkissáttasemjara. Fundir hófust í gær en verkfallsboðunin er enn í gildi.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More