Verjendur meints morðingja Kirks vilja fara betur yfir sönnunargögn í málinu og segja sumt ekki passa saman
April 1, 2026
RÚV
Verjendur Tyler Robinson, mannsins sem grunaður er um morðið á hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk í september, segjast þurfa að fara betur gegnum sönnunargögn þar sem margt virðist ekki stemma. Byssukúlan sem banaði Kirk passar ekki við riffilinn sem rannsakendur telja að sá grunaði hafi notað. Þetta kemur fram í dómskjölum sem verjendur Robinson hafa lagt fram.
Hann er ákærður fyrir að hafa skotið Kirk til bana á samkomu við háskóla í Utah 10. september. Robinson var handtekinn daginn eftir og er talinn hafa framið morðið vegna andstöðu við skoðanir Kirks. Hann var sakaður um rasisma og gagnrýndi réttindi hinsegin fólks út frá forsendum biblíunnar. Kirk var vinsæll fyrirlesari og hagnaðist vel á hlaðvarpi sínu The Charlie Kirk Show en líka bókum sem seldust í bílförmum. Ekkja Kirks, Erika Kirk, sagðist fljótlega eftir morðið fyrirgefa banamanni hans.Verjendurnir segjast þurfa meiri tíma til að fara í gegnum þau umfangsmiklu sönnunargögn sem rannsóknarstofnunin ATF hefur lagt fram. Þeir drógu einnig í efa lífsýni sem ATF segir tilheyra fimm eða fleiri einstaklingum. Stofnunin hefur það hlutverk að sinna rannsóknum á ólöglegri notkun og viðskiptum með skotvopn og sprengiefni, íkveikjum og áfengis- og tóbakssmygli. Saksóknari í málinu segir ekkert óvenjulegt við að erfitt sé að staðfesta með vissu að kúlu hafi verið skotið úr tilteknu vopni. Nægar sannanir bendi til að Robinson hafi skotið Kirk úr launsátri af húsþaki og gögn þess efnis verði lögð fram við yfirheyrslur og málflutning. Robinson gæti beðið dauðarefsing verði hann fundinn sekur.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.