Velferðarráð Reykjavíkurborgar gagnrýnir nýtt frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum. Skortur á samráði og knappur tími til umfjöllunar á þingi er meðal athugasemda velferðarráðs sem fer fram á að málið verði unnið betur áður en það verður að lögum.Ráðið kallar eftir víðtækri umræðu og nánu samstarfi varðandi efni frumvarpsins.Frumvarpið var lagt fram í gær og er markmið lagabreytinganna að tryggja börnum, sem búa við óviðunandi aðstæður eða stefna heilsu sinni og þroska í hættu, stuðning, umönnun og vernd.Með frumvarpinu eru lagðar til fjölmargar breytingar frá ákvæðum gildandi barnaverndarlaga.Lítið samráð og óskýr ákvæðiÍ umsögn velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að frumvarpið sé lagt fram of seint til að raunhæft sé að það nái þeirri umfjöllun sem það eigi skilið. Samráð hafi ekki verið nægilegt, sér í lagi í ljósi þess að málaflokkurinn snerti viðkvæma hópa.Ámælisvert er að í frumvarpinu er kafli um fósturmál ekki endurskoðaður nægilega. Ekki er fjallað með nægjanlega skýrum hætti um málefni fatlaðra og seinfærra foreldra. Aukinheldur eru ákvæði um börn með fjölþættar stuðningsþarfir óskýr,“ segir í umsögn velferðarráðs.Málið verði unnið beturFrumvarpið geri ráð fyrir því að úrskurðarvald sé fært frá sveitarfélögunum til ríkisins, sem kalli á aukið samtal við sveitarfélögin.Velferðarráð ítrekar mikilvægi þess að vandað sé til verka í þeim viðkvæma málaflokki sem barnavernd er og hefur áhyggjur af því að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til athugasemda. Ráðið fer fram á að málið verði unnið betur áður en það verður að lögum.
March 27, 2026