Veifuðu ítrekað áliti fjármálaráðs
0
World

Veifuðu ítrekað áliti fjármálaráðs

April 14, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Fjármálaráðherra segir að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sé grunnurinn að lækkun vaxta og bættum lífskjörum. Umræða um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hófst á Alþingi í dag.Umræðan stendur yfir í tvo daga þar sem fjármálaráðherra mælir fyrir áætluninni og fer yfir stóru myndina en á morgun mæta fagráðherrar og tala fyrir sínum málaflokkum.Áætlunin var kynnt í lok mars og voru helstu tíðindin þau, gangi áætlunin eftir, er að ríkissjóður verður rekinn með milljarðs afgangi.

Veifuðu ítrekað áliti fjármálaráðs

Yrði það þá í fyrsta sinn síðan 2018 sem ríkissjóður er rekinn með afgangi. Með þessari áætlun sendum við skýr skilaboð: Ríkisstjórnin stendur við sín markmið. Það er forsenda þess að vextir lækki og lífskjör batni,“ sagði Daði Már í flutningsræðu sinni.Stjórnarandstaðan lítur áætlunina ekki jafn björtum augum og fjármálaráðherra. Vísaði hún ítrekað til álits fjármálaráðs sem sagði að þótt markmið um hallalaus fjárlög sé gott í sjálfu sér þá þurfi meira borð fyrir báru til að það sé trúverðugt, enda regla frekar en undantekning að óvænt áföll ríði yfir. Þá segir einnig í áliti fjármálaráðs að tenging bóta almannatrygginga við vísitölu, sem þingið samþykkti á dögunum, geti haft ýmsar afleiðingar í för með sér.Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir ríkisstjórnina skella skollaeyrum við ábendingum fjármálaráðs. Núna þegar fjármálaráð kemur með mjög alvarlegar athugasemdir segja menn: Það skiptir engu máli. Við ætlum ekki einu sinni að taka þátt í umræðunni.“Stefán Vagn Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, telur að áætlunin sé byggð á hæpnum forsendum og að lítið megi út af bregða svo að afgangur breytist í halla. Ég hef raunverulegar áhyggjur af því í þessari fjármálaáætlun að ef ekkert frekar verður gert, þá getum við lent í þeirri stöðu að kjarasamningar eru í uppnámi. Þá er þessi ágæta fjármálaáætlun, sem er að mörgu leyti ágæt, í upplausn. Þá er ekki stafkrók að marka það sem í henni stendur vegna þess að þá eru forsendurnar farnar.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More