Vaxandi andstaða við aðild að ESB
April 8, 2026
RÚV
47 prósent landsmanna eru andvíg aðild Íslands að Evrópusambandinu en 40 prósent fylgjandi henni, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir Viðskiptablaðið. Þrettán prósent taka ekki afstöðu. Ef aðeins er litið til þeirra sem taka afstöðu eru 54 prósent andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið en 46 prósent hlynnt.Andstaða við aðild fer vaxandi á sama tíma og dregur úr stuðningi, samkvæmt síðustu könnunum.
Þannig hefur fylgi við aðild lækkað um fjögur prósentustig, úr 44 prósentum, í apríl í fyrra en andstaða aukist um ellefu prósentustig, úr 36 prósentum, á sama tíma.Yfir 80 prósent Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna eru andvíg aðild og 90 prósent stuðningsmanna Miðflokksins. Um 80 prósent Samfylkingarfólks og Viðreisnarfólks eru fylgjandi aðild og 49 prósent kjósenda Flokks fólksins. 32 prósent stuðningsmanna síðastnefnda flokksins eru andvíg aðild.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.