Advertisement
Varar ESB-ríki við „langvarandi röskun“ á eldsneytisflutningum
World

Varar ESB-ríki við „langvarandi röskun“ á eldsneytisflutningum

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Orðsending Dan Jörgensens, orkumálastjóra hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins var veganestið inn á fund orkumálaráðherra ESB-ríkjanna sem hófst eftir hádegið í dag og stendur enn.Í bréfinu, sem birt var í dag segir Jörgensen að það sé kominn tími til að gera ráðstafanir, því við þurfum að vera viðbúin því að það verði langvarandi röskun á eldsneytisflutningum.“Eldsneytisverð hefur hækkað hressilega í Evrópu, sem og annars staðar í heiminum, vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og þeirrar röskunar sem verið hefur á flutningum á eldsneyti um Hormussundið.Jörgensen hvetur einnig aðildarríkin til að samræma aðgerðir til að bregðast við þessu ástandi og koma á framfæri tillögum til almennings til að draga úr notkun á eldsneyti - með áherslu á samgöngugeirann.Í bréfi framkvæmdastjórans er vísað í tillögur Alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA), þar sem meðal annars er lagt til að hámarkshraði á þjóðvegum verði lækkaður, fólk verði hvatt til að vinna að heiman, og fljúgi ekki nema nauðsyn beri til.Hópur ríkja innan Evrópusambandsins hefur þegar gripið til aðgerða vegna hækkandi verðs á eldsneyti.

Varar ESB-ríki við „langvarandi röskun“ á eldsneytisflutningum

Þannig hafa spænsk stjórnvöld lagt fram fimm milljarða evra áætlun um að aðstoða fólk og fyrirtæki sem lenda í vandræðum út af hækkandi orkuverði, Slóvakar hafa tekið upp skömmtun á eldsneyti og í Portúgal hafa stjórnvöld afnumið tímabundið skatta á eldsneyti - það sama gerði norska stórþingið fyrir nokkrum dögum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More