Vance heimsækir Orban í stuðningsskyni
April 7, 2026
RÚV
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, er á leið til fundar við ungverska forsætisráðherrann Viktor Orban. Tilgangur heimsóknarinnar er meðal annars að færa honum stuðningskveðjur frá Donald Trump forseta í aðdraganda þingkosninga næsta sunnudag.Viktors Orban gæti beðið ósigur á sunnudaginn eftir sextán ára valdatíð. Vance kveðst ætla að ræða sterk tengsl landanna tveggja við forsætisráðherrann ásamt því sem málefni Úkraínu og Evrópu verði ofarlega á baugi.Orban er hliðhollur Rússum og hefur ítrekað stöðvað liðsinni Evrópusambandsins við Úkraínumenn.
Skoðanakannanir óháðra stofnana benda til stórsigurs Tisza-flokks Evrópusinnans Peters Magyar en þær sem hliðhollari eru ríkisstjórninni boða sigur Fidesz-flokks Orbans.Trump-stjórnin hefur af alefli lýst yfir stuðningi við leiðtoga flokka sem aðhyllast hugmyndafræði sem henni er að skapi og þannig rofið þá hefð fyrri stjórna að skipta sér ekki af kosningum erlendis.Orban vill líkt og Trump sporna af hörku við innstreymi fólks af erlendum uppruna. Vance hefur verið afar gagnrýninn á frjálslyndar ríkisstjórnir í ríkjum Evrópu en mjög hliðhollur þeim flokkum álfunnar sem lengst eru til hægri.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.