0
Valur flaug í úrslit annað árið í röð
April 13, 2026
Posted 3 hours ago by
Valur sigraði KA, 38-34 í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta að Hlíðarenda í kvöld. Þar sem Valur hafði unnið fyrstu tvo leiki liðanna er einvíginu þar með lokið 3-0 og Valsmenn komnir í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.Þetta er annað árið í röð sem Valur leikur til úrslita því í fyrra komst Valur líka í úrslitaeinvígið en tapaði þá fyrir Fram 3-0.
Nú verður mótherjinn annað hvort FH eða Haukar, en Hafnarfjarðarliðin etja kappi í hinu undanúrslitaeinvígi Íslandsmótsins. Þar er staðan 1-1 en liðin mætast í þriðja leik annað kvöld og í fjórða leik á föstudag. Komi til oddaleiks verður hann spilaður næsta mánudag.Úrslitaeinvígi Vals og Hafnarfjarðarliðsins sem vinnur þá rimmu, hefst að óbreyttu í lok næstu viku, föstudaginn 24. apríl.Andri Finnsson var markahæstur Valsmanna í sigrinum á KA í kvöld með átta mörk. Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði sjö og Arnór Snær Óskarsson sex. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 10 mörk fyrir KA.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.