0
Valskonur með endurkomusigur í fyrsta leik
April 15, 2026
Posted 5 hours ago by
Valur tók á móti Fram í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni kvenna í handbolta í kvöld. Gestirnir byrjuðu betur og komust snemma fimm mörkum yfir, 2-7. Gestirnir héldu forskotinu vel og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 12-16. Frumkvæðið var Framara og liðið leiddi allt þar til á 56. mínútu þegar Guðrún Hekla Traustadóttir jafnar fyrir Val, 22-22.
Þaðan var allt í járnum, Fram tekur leikhlé þegar rúm mínúta er eftir og Valur leiðir, 25-24. Sóknin fór hins vegar í súginn og Lovísa Thompson átti síðasta mark leiksins fyrir Val og lokatölur 26-24. Lovísa var jafnframt markahæst í dag með sex mörk.Valur leiðir einvígið því 1-0 og vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram. Liðin mætast aftur á laugardag í Úlfarsárdal.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.