Utankjörfundaratkvæðagreiðsla byrjar rólega
0
World

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla byrjar rólega

April 18, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Alla hafa 144 greitt atkvæði utankjörfundar á landinu öllu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga og þar af 77 á höfuðborgarsvæðinu. Atkvæðagreiðslan hófst í gær.Hægt er að greiða atkvæði hjá sýslumönnum á 28 stöðum á landinu og erlendis í sendiráðum og hjá ræðismönnum. Atkvæðagreiðslan á höfuðborgarsvæðinu er í Hlíðarsmára í Kópavogi þar sem sýslumannsembættið er til húsa.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla byrjar rólega

Fyrstu tvær vikurnar verður opið frá tíu til sex fyrir utan sumardaginn fyrsta en þá er lokað.Það er rólegt hjá okkur fyrstu vikurnar og svo er mest að gera hjá okkur síðustu dagana fyrir kjördag,“ segir Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu.Tæplega 24 þúsund greiddu atkvæði utan kjörfundar í síðustu sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum. Sigríður segir kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu almennt minni í sveitarstjórnarkosningum en í öðrum kosningum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More