Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni sem var handtekinn eftir líkamsárás á Höfðatorgi fyrr í mánuðinum. Hann hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í fjórar vikur til viðbótar.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að rannsókn málsins sé umfangsmikil en miði vel.Annar situr í gæsluvarðhaldi vegna sama máls. Hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í fyrradag. Mennirnir eru báðir grunaðir um grófa líkamsárás og tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru báðir mennirnir erlendir ríkisborgarar, annar frá Palestínu og hinn fæddur í Svíþjóð með ættir að rekja til Sómalíu. Þrettán eru með réttarstöðu sakbornings.Samkvæmt heimildum fréttastofu snerust átökin um nokkur hundruð þúsund króna skuld og þeim lauk með því að Land Rover Defender-jeppa var ekið á einn þeirra sem ætlaði að innheimta skuldina og hann síðan stunginn. Hann lá um tíma á gjörgæsludeild Landspítalans en hefur verið útskrifaður þaðan.
March 27, 2026