Urðu fyrir bíl á gangstétt við söluskálann í Varmahlíð
March 30, 2026
RÚV
Barn og fullorðinn sem urðu fyrir bíl í Varmahlíð í gær eru enn á Landspítala. Ekki fást frekari upplýsingar um líðan þeirra. Þau voru á gangstétt fyrir utan söluskála Olís í Varmahlíð þegar slysið varð. Þau voru flutt með sjúkrabíl á Sauðárkrók og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur.Mörg vitni voru að slysinu. Söluskálanum var lokað, áfallateymi kallað á staðinn og starfsfólki og öðrum viðstöddum boðinn sálrænn stuðningur.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi vestra voru bæði þau slösuðu og ökumaðurinn Íslendingar á ferð um landið.Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í hæsta forgangi þegar slysið varð. Þegar ljóst var að hægt var að koma þeim slösuðu fyrr undir læknishendur með sjúkraflugi frá Sauðárkróki var þyrlan afturkölluð.Lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar tildrög slyssins.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.