0
Úr borgarstjórn í sveitarstjóraefni í Þingeyjarsveit
April 19, 2026
Posted 2 hours ago by
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í borgarstjórn síðastliðin átta ár, verður sveitarstjóraefni L-lista framfara í Þingeyjarsveit í komandi sveitarstjórnarkosningum.Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.FaxaflóahafnirÞórdís Lóa tilkynnti í haust að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram í borginni. Viðreisn, með Þórdísi í broddi fylkingar, var í meirihluta í borgarstjórn 2018 til 2022 og aftur eftir kosningarnar 2022 þar til slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi í febrúar í fyrra.Í færslu á Facebook segir Þórdís að hún eigi rætur í Þingeyjarsveit.
Mikil tækifæri séu til að efla atvinnulíf, styðja við fjölskyldur og skapa enn betri aðstæður til að búa og starfa.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.