Advertisement
Ungir karlmenn þurfa leyfi hersins til lengri dvalar í útlöndum
World

Ungir karlmenn þurfa leyfi hersins til lengri dvalar í útlöndum

April 5, 2026
RÚV
Scroll

Þýskir karlmenn á aldrinum 17 til 45 ára þurfa að sækja um sérstakt leyfi hyggist þeir dvelja lengur en þrjá mánuði erlendis samkvæmt ákvæðum nýrra laga sem innleiddu sjálfboðaherþjónustu. Lögin tóku gildi 1. janúar og er ætlað að auðvelda herkvaðningu komi til hernaðarógnar, ekki síst af hálfu Rússa, segir í skriflegu svari talsmanns varnarmálaráðuneytisins við fyrirspurn BBC.

Ungir karlmenn þurfa leyfi hersins til lengri dvalar í útlöndum

Fáir höfðu gefið ákvæðinu gaum fyrr en dagblaðið Frankfurter Rundschau fjallaði um það á föstudaginn. Lengri dvöl ber almennt að samþykkja og óljóst þykir hvernig yfirvöld bregðast við broti á tilkynningaskyldunni. Brýnt að vita hversu margir dvelja í útlöndum Í skriflegu svari ráðuneytisins segir að brýnt sé að vita hversu margir séu erlendis komi til neyðarástands. Einnig er viðurkennt að skilyrðin hafi víðtæk áhrif á líf ungs fólks og því sé verið að þróa reglur til að taka á undantekningartilvikum, ekki síst til að komast hjá of mikilli skriffinnsku. Lagalegur grunnur skilyrðanna liggur í lögum um herskyldu frá árinu 1956 sem hefur verið breytt nokkrum sinnum, seinast í desember. Þá var ákveðið að fjölga verulega í hernum á næsta áratug án þess að taka upp herskyldu. Þangað til gilti tilkynningaskyldan um lengri dvöl aðeins ef Þýskaland átti í stríði eða ef herkvaðning var hafin. Ráðuneytið segir reglurnar hafa verið svipaðar og nú á tímum kalda stríðsins án þess að það hefði sérstök áhrif.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More