Ungir frumkvöðlar þróa bragðbættan harðfisk
April 7, 2026
RÚV
Nemendur í FG hafa þróað harðfisk með þrenns konar bragðtegundum. Að baki hverjum harðfiskpoka liggur mikil vinna en krakkarnir hanna og útbúa umbúðirnar sjálfir.Við erum búin að gera þetta í góðu samstarfi við harðfisksverksmiðjuna Von í Hafnarfirðinum. Öll okkar framleiðsla fer fram hjá þeim,“ segir Björn Helgi Devine. Hugmyndin var próteinsnakk og þá er harðfiskurinn svo hrein matvara.“Í hópnum eru einnig þau Alexander Máni Eiðsson, Bryndís Jónsdóttir, Rinalds Kluga og Þórhallur Ragnar Svansson.En hvernig fóru þau að því að þróa bragðtegundirnar? Við fórum að hugsa hvaða krydd eða bragðtegundir passa vel með fiski yfir höfuð,“ segir Björn.
Úr varð harðfiskur með sítrónupipar, chili eða hvítlauk. Afurðin verður kynnt á vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind í næstu viku.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.