Undirrituðu samstarfs- og vináttusáttmála í Pyongyang

Undirrituðu samstarfs- og vináttusáttmála í Pyongyang

Forseti Belarús, Alexander Lukashenko, og leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong Un, undirrituðu samstarfs- og vináttusáttmála við mikla athöfn í Pyongyang í gær. Lukashenko var í sinni fyrstu opinberu heimsókn í Norður-Kóreu og fékk hann góðar móttökur hjá Jong Un.Utanríkisráðherra Belarús, Maxim Ryzhenkov, sagði að löndin hefðu einnig samið um samstarf á mörgum sviðum, allt frá landbúnaði til upplýsinga. Viðskipti milli landanna eru minniháttar, Belarús flytur meðal annars út lyf og matvæli til Norður-Kóreu. Belarúsar hyggjast þó flytja inn ýmsar snyrtivörur frá Norður-Kóreu.Báðar þjóðirnar hafa veitt Rússum aðstoð í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Innrás Rússa hófst frá Belarús og rússnesk kjarnorkuvopn eru geymd í Belarús. Leyniþjónusta Suður-Kóreu og vestrænar leyniþjónustur áætla að Norður-Kórea hafi sent þúsundir hermanna til Rússlands, einkum til Kursk-héraðs, auk vopna, flugskeyta, og eldflaugakerfa.Rússland og Norður-Kórea undirrituðu hernaðarlegan samstarfssamning árið 2024, sem felur í sér þá skuldbindingu að hvor þjóðin veiti hinni hernaðarlega aðstoð og aðra aðstoð verði ráðist á hina. Greinendur segja að Norður-Kórea fái fjárhagslega aðstoð, hernaðartækni, matvæli og orkubirgðir frá Rússlandi, sem dregur úr þörf Norður-Kóreu á aðstoð frá Kína.Belarús og Norður-Kórea eru undir vestrænum viðskiptaþvingunum en ríkisstjórnir landanna eru sakaðar um víðtæk mannréttindabrot.

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left