Úkraínumenn saka Rússa um að sviðsetja fyrirhugað skemmdarverk á gasleiðslu í Serbíu
World

Úkraínumenn saka Rússa um að sviðsetja fyrirhugað skemmdarverk á gasleiðslu í Serbíu

April 6, 2026
RÚV
Scroll

Úkraínska utanríkisráðuneytið sakar Rússa um hafa sviðsett fyrirhugað sprengjutilræði við Balkan-gasleiðsluna í Serbíu til að hafa áhrif á úrslit kosninga í Ungverjalandi. Leiðslan flytur jarðgas frá Rússlandi til landanna á Balkanskaga og Ungverjalands.Aleksandar Vučić Serbíuforseti og ungverski forsætisráðherrann Viktor Orbán sögðu í gær lögreglu hafa fundið sprengiefni skammt frá leiðslunni.

Úkraínumenn saka Rússa um að sviðsetja fyrirhugað skemmdarverk á gasleiðslu í Serbíu

Orbán kenndi Úkraínumönnum ekki beinlínis um en sagði þá lengi hafa reynt að stöðva orkuflutninga frá Rússlandi til Evrópuríkja.Að loknum fundi öryggisráðs landsins sagði Orbán dagljóst að spellvirki hefði verið í undirbúningi. Þá sagði hann gasleiðslu milli Rússlands og Tyrklands, sem tengist Balkanleiðslunni, verða fyrir sífelldum árásum og aðgerðir Úkraínumanna ógnuðu lífi Ungverja.Úkraínumenn sverja af sér alla aðildÚkraínska utanríkisráðuneytið sagðist ekkert hafa með málið að gera, líklega hefðu Rússar komið sprengiefninu fyrir til að hafa áhrif á kosningaúrslit í Ungverjalandi næsta sunnudag. Orbán hefur ítrekað stöðvað liðsinni Evrópusambandsins við Úkraínumenn og sakað þá um að koma í veg fyrir olíuflutninga frá Rússlandi.Skoðanakannanir benda til þess að Fidesz-flokkur Orbáns geti lotið í lægra haldi fyrir Evrópusinnuðum Tisza-flokki Peters Magyar. Hann telur einnig að Rússar hafi plantað sprengiefninu til að kveikja ótta meðal kjósenda og styrkja sigurlíkur Orbáns.Magyar kvaðst jafnframt lengi hafa heyrt orðróm um að eitthvað þessu líkt gæti gerst í Serbíu. Aðalmálið sé að sjá til þess að Orbán, sem hefur setið að völdum 16 ár, reyni ekki að koma í veg fyrir kosningarnar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More