0
Úkraínuforseti uggandi yfir töfum á afhendingu bandarískra vopna — drónar framleiddir í Noregi
April 15, 2026
Posted 3 hours ago by
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir aðalsamningamenn Bandaríkjanna, þá Jared Kushner og Steve Witkoff, of upptekna vegna stríðsins í Íran og harmar þær tafir sem orðið hafa á afhendingu vopna þaðan. Hlé hefur orðið á samningaviðræðum með milligöngu Bandaríkjanna síðan 28. febrúar. Zelensky segir brýnt að Bandaríkjamenn linni ekki þrýstingi á Vladimír Pútín Rússlandsforseta, ella telji hann sig öruggan.
Dragist stríðið gegn Íran á langinn verður erfiðara fyrir Bandaríkjamenn að útvega Úkraínu vopn, ekki síst til loftvarna að mati Zelenskys. Þau viðskipti við Bandaríkin byggja á PURL-samkomulaginu frá í fyrra, sem Evrópuríki fjármagna. Hann lét þessi orð falla á fundi í gær með norska forsætisráðherranum Jonas Gahr Støre þar sem þeir undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um aukna samvinnu ríkjanna um varnar- og öryggismál. Meðal annars verða úkraínskir drónar framleiddir í Noregi, samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þeir Zelensky og Friedrich Merz tilkynntu einnig um aukið varnarsamstarf í gær og breski varnarmálaráðherrann John Healey tilkynnti að Úkraínuher fengi minnst 120 þúsund dróna afhenta á þessu ári.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.