Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir eldsvoða í bílskúr
World

Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir eldsvoða í bílskúr

April 8, 2026
RÚV
Scroll

Dælubíll og sjúkraflutningabíll.RÚV / Hólmfríður Dagný FriðjónsdóttirTveir voru fluttir á bráðamóttöku til skoðunar eftir að eldur kom upp í bílskúr við íbúðarhús í Kópavogi skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Ekki er vitað um líðan þeirra en meiðsli þeirra voru talin minniháttar samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.Allir dælubílar frá fjórum slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang.

Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir eldsvoða í bílskúr

Hætta var á að eldur bærist út svo ráða þurfti niðurlögum eldsins og einnig beita kælingu svo eldurinn bærist ekki í nærliggjandi íbúðarhús. Slökkvistarfi lauk um tveimur tímum síðar. Talsvert tjón var á bílskúrnum en eldsupptök eru ókunn.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More