Tveir af hverjum þremur vilja leiguþak
0
World

Tveir af hverjum þremur vilja leiguþak

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Nær fjórfalt fleiri eru fylgjandi því en andvígir að setja lög um leiguþak á húsnæðismarkaði. 68 prósent eru hlynnt slíkri lagasetningu en átján prósent eru því andvíg, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu.Mun meiri stuðningur en andstaða er við slíka lagasetningu óháð kyni, aldri, búsetu, menntun og heimilistekjum svarenda. Eina breytan þar sem sjá má mikinn mun á afstöðu fólks er stjórnmálaskoðanir.100 prósent Sósíalista, 96 prósent Pírata og 95 prósent stuðningsmanna Flokks fólksins eru fylgjandi leiguþaki.

Tveir af hverjum þremur vilja leiguþak

Enginn stuðningsmanna þessara flokka lýsir sig andvígan leiguþaki.Mestu andstöðuna við leiguþak er að finna meðal Sjálfstæðismanna (46 prósent andvíg en 34 prósent fylgjandi) og stuðningsmanna Miðflokksins (34 prósent andvíg en 45 prósent fylgjandi).Það er aðeins meðal þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn þar sem finna má meiri andstöðu en stuðning við leiguþak.Mikill munur er á afstöðu karla og kvenna. 82 prósent kvenna eru fylgjandi leiguþaki og 55 prósent karla. 29 prósent karla eru andvíg lagasetningu en sjö prósent kvenna.Mesti stuðningur, út frá aldri, er meðal 70 ára og eldri (75 prósent) en mesta andstaðan meðal átján til 29 ára (25 prósent). Íbúar á Austurlandi eru hlynntastir leiguþaki (81 prósent) en íbúar í Suðvesturkjördæmi lýsa minnstum stuðningi við það (63 prósent) og mestri andstöðu (23 prósent).

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More