Tuttugu íslenskir strandaglópar í Færeyjum
April 7, 2026
RÚV
Um tuttugu Íslendingar sem áttu flug með Icelandair frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur í gær sitja fastir í Þórshöfn í Færeyjum þangað til á morgun. Farþegi segist hafa fengið litlar sem engar upplýsingar frá Icelandair en upplýsingafulltrúi flugfélagsins segir að unnið sé að úrlausn.Guðrún Guðjónsdóttir er ein þeirra sem ætluðu að fljúga heim til Íslands frá Kaupmannahöfn í gær.
Hún segist hafa fengið tölvupóst frá Icelandair í fyrradag þar sem farþegar voru upplýstir um að fluginu hefði verið aflýst vegna veðurs og að þeim hefði verið útveguð gisting á hóteli í Þórshöfn í eina nótt.Enginn vissi eitt né neitt“Upphaflega var það þannig að þeir ætluðu að millilenda hérna í Færeyjum og svo ætluðu þeir að sækja okkur og fljúga með okkur frá Þórshöfn til Reykjavíkur. En svo er því flugi aflýst og við erum bara öll strandaglópar og enginn vissi eitt né neitt,“ segir Guðrún.Svo þurftum við að dröslast með strætórútunni frá flugvellinum sem keyrði okkur ekki einu sinni upp á hótel þannig að við þurftum að labba einhverja tíu mínútna leið með töskurnar uppi á hóteli. Við höfum ekki fengið neinn tölvupóst frá þeim þannig að í rauninni hefur enginn vitað neitt.“Að sögn Guðrúnar hefur gengið illa að ná tali af Icelandair þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir farþega. Hún segir þau ekki hafa fengið val um að fara til Þórshafnar.Þeir taka bara ákvörðun um að senda okkur til Færeyja. Því miður hefur fluginu verið aflýst, segja þeir hérna. Og í rauninni höfðum við eiginlega ekkert val, þetta var bara svona: Þið eruð að fara til Færeyja, annars þurfið þið bara að redda ykkur á eigin vegum.“Icelandair harmar skort á upplýsingagjöfGuðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir alls um tíu þúsund farþega hafa orðið fyrir áhrifum af röskunum á flugi vegna veðurs í gær. Flugfélagið hafi lagt sig fram við að finna leiðir til að koma farþegum á áfangastaði eins hratt og auðið hafi verið.Farþegar frá Kaupmannahöfn hafi svo orðið fyrir frekari röskun í dag þegar ekki var hægt að fljúga frá Færeyjum vegna veðurs eins og til stóð. Það sé leitt.Flugfélagið harmar að upplýsingum hafi ekki verið komið betur á framfæri við farþega. Unnið sé að úrlausn og haft verði samband við þá.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.