0
World
Tugþúsundir fögnuðu á götum Búdapest
April 13, 2026
RÚV
Scroll
Mikil fagnaðarlæti brutust út í Ungverjalandi í gærkvöld þegar ljóst varð að Tisza-flokkurinn hefði hlotið meirihluta atkvæða í þingkosningum. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá fagnaðarlæti í Búdapest. Fólk sem mættist í rúllustigum jarðlestarstöðvar fagnaði og gaf hvert öðru fimmu. Tugir þúsunda þustu út á götur borgarinnar til að fagna og líf og fjör var þar í alla nótt.Stjórnarandstöðunni var spáð sigri í kosningunum en það kom jafnvel stuðningsmönnum Tisza-flokksins á óvart hversu afgerandi sigurinn varð.
Flokknum tókst að tryggja sér um tvo þriðju hluta þingsæta.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.
Iceland
Bias: lean left