0
Trúnaðarmenn eigi að fá að tjá sig án ótta við refsingu
April 18, 2026
Posted 3 hours ago by
Tryggja þarf að trúnaðarmenn stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu geti tjáð sig án ótta, segja formenn, stjórnar- og trúnaðarmenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu. Tólf þeirra standa fyrir skoðanagrein á Vísi þar sem þeir segja að standa þurfi vörð um umboð fulltrúa fag- og stéttarfélaga í trúnaðarhlutverkum.Ragnari Frey Ingvarssyni lækni var sagt upp störfum hjá Landspítalanum í liðinni viku, þar sem hann gegndi hlutastarfi.
Landspítalinn sagði það vera vegna ríkrar aðhaldskröfu. Ragnar er formaður Læknafélags Reykjavíkur og telur félagið að með uppsögninni sé brotið gegn félagsmönnum þess.Í aðsendu greininni segja formenn fag- og stéttarfélaga að gagnrýni, fagleg ábending og opin umræða séu ekki ástæða til refsinga heldur forsenda umbóta.Félagsfólk velur sér fulltrúa til að tala sínu máli, benda á það sem miður fer og þrýsta á umbætur.“Til að stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu þurfi þeir sem tali fyrir hennar hönd að geta gert það án ótta.Það er ekki aðeins réttlætismál gagnvart starfsfólki, það er grundvallarforsenda þess að samfélagið allt njóti góðs af.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.