0
Trump segir Leó páfa þurfa að skilja að veröldin geti verið vondur staður
April 17, 2026
Posted 2 hours ago by
Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki hættur óbeinum rökræðum við Leó páfa XIV. Hann geti sagt það sem hann lystir um heimsmálin en hann verði að átta sig á að veröldin sé raunverulega vond.Forsetinn hefur undanfarna daga gagnrýnt skoðanir þessa leiðtoga 1,4 milljarðs kaþólikka allt frá innflytjendamálum til stríðs Bandaríkjanna gegn Íran, kallað hann veikgeðja vinstrimann og vankunnandi í utanríkismálum.Leó hefur á móti sagt bera siðferðilega skyldu til að andæfa stríðum og ofbeldi.
Meðal annars sagði hann að hótanir Trumps um gereyðingu sex þúsund ára gamallar siðmenningar í Íran hefðu verið gersamlega óásættanlegar.Nokkuð kvað við mildari tón hjá Trump í gær þegar hann ræddi heimsmálin við fréttamenn en ákvað þó að messa örlítið yfir páfa um klerkastjórnina í Íran. Páfi verður að skilja að Íransstjórn hefur drepið yfir 42 þúsund saklausa, óvopnaða mótmælendur síðustu mánuði,“ sagði Trump.Hann bætti loks við að þannig væri raunveruleikinn í oft andstyggilegum heimi. Forsetinn kvaðst jafnframt alls ekki eiga í útistöðum við páfa og væri honum alls ekki andsnúinn. Þó er stutt síðan Trump sagði sér ekki líka við Leó XIV.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.