Advertisement
Trump sagður hafa vikið Pam Bondi úr embætti
World

Trump sagður hafa vikið Pam Bondi úr embætti

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi dómsmálaráðherra úr embætti. Þetta hefur fjölmiðillinn Reuters eftir heimildum sínum innan Hvíta hússins. Hann er sagður hafa verið ósáttur við frammistöðu hennar í embætti, svo sem í Epstein-málinu. Bondi hefur verið sökuð um að hafa ekki birt öll skjöl tengd málinu.Þá er Trump einnig sagður hafa verið ósáttur við seinagang Bondi við að sækja til saka gagnrýnendur og andstæðinga sem hann vildi fá fyrir dóm.CNN og aðrir bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Todd Blanche, sem gegnt hefur embætti varadómsmálaráðherra og verið lögmaður Trumps, taki við stöðu starfandi dómsmálaráðherra.Pam Bondi hefur verið dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps.EPA / JIM LO SCALZO

Trump sagður hafa vikið Pam Bondi úr embætti
RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More