0
Tottenham áfram í fallsæti eftir tap í Sunderland
April 12, 2026
RÚV
Slæmt gengi Tottenham í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta hélt áfram í dag því liðið tapaði fyrir Sunderland á útivelli, 1-0.Markalaust var í hálfleik og eina mark leiksins skoraði Nordi Mukiele á 61. mínútu.Tottenham vann síðast deildarleik 28. desember. Síðan þá hefur liðið gert fimm jafntefli og tapað 9 leikjum. Félagið rak Thomas Frank 11. febrúar og réð Igor Tudor í hans stað tveimur dögum síðar.Hann entist til 29.
mars og aftur tók það félagið tvo daga að ráða nýjan mann, í þetta skiptið Roberto De Zerbi. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn.Eftir 32 umferðir af 38 er Tottenham í 18. sæti með 32 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Sunderland er með 46 stig í 10. sæti.Önnur úrslit:Crystal Palace 2-1 Newcastle UnitedNottingham Forest 1-1 Aston VillaStaðan í deildinni.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.