Tónleikum Kanye West í Póllandi aflýst
0
World

Tónleikum Kanye West í Póllandi aflýst

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Tónleikum bandaríska rapparans Kanye West eða Ye sem átti að halda í Póllandi í júní hefur verið aflýst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum tónleikanna í landinu.Tónlistarmaðurinn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir hatursfulla orðræðu í garð gyðinga og hefur hann sjálfur sagst vera nasisti. Í febrúar á síðasta ári hóf West sölu á stuttermabolum með hakakrossi en verslunarsíðan Shopify tók vefverslun hans niður stuttu seinna.

Tónleikum Kanye West í Póllandi aflýst

West gaf einnig út lagið Heil Hitler í fyrra en í texta lagsins lofar hann þýska nasistaleiðtogann.Marta Cienkowska, menningarráðherra Póllands, sagði áður óásættanlegt að hann fengi að halda tónleika í landinu í ljósi ummæla sinna.Wireless draumurinn útiBresk stjórnvöld hafa þegar bannað tónlistarmanninum Kanye West að koma til landsins. West átti að vera aðalnúmerið á tónlistarhátíðinni Wireless í Lundúnum í júlí. Búið er að aflýsa tónlistarhátíðinni.West sótti um rafræna ferðaheimild til landsins en var neitað á þeim forsendum að nærvera hans þjónaði ekki almannahag, hátíðinni var aflýst þegar í ljós kom var að West fengi ekki inngöngu í landið.Missti tengsl við veruleikannWest gaf út formlega afsökunarbeiðni í Wall Street Journal í janúar þar sem hann sagðist hvorki vera nasisti né gyðingahatari. Hann sagðist hafa farið í fjögurra mánaða langt geðrof í fyrra þar sem hann glímdi við ofsóknaræði og hvatvísa hegðun sem hafi eyðilagt líf hans. Hann missti tengslin við raunveruleikann og segist hafa sagt og gert hluti sem hann sæi mikið eftir.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More