Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála gerir miklar athugasemdir við vinnubrögð barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar. Í skýrslu stofnunarinnar segir að jafnvel mörg ár hafi liðið án þess að starfsmaður barnaverndar heimsótti fósturheimili. Stofnunin gerir 25 tillögur um endurskoðun eða úrbætur.Meðal athugasemda GEV er að töluverður misbrestur á skráningu gagna og varðveislu upplýsinga, ekki hafi verið gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilin leyfi og ekki hafi verið gætt á fullnægjandi hátt að réttindum barna við málsmeðferð.Í skýrslunni eru tekin dæmi þar sem til að mynda var tekin ákvörðun um vistun barns eða breytingar á henni án þess að ljóst væri hvernig ákvörðunin var tekin, eða þar sem óljóst var að samþykki foreldris hafi legið fyrir. Þá hafi ekki verið haldið utan um leyfi vistunaraðila eða fósturforeldra í gögnum barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar.Engar upplýsingar um heimsóknir þrátt fyrir áhyggjurGögn frá barnavernd Reykjanesbæjar bendi til þess að í einhverjum tilvikum hafi jafnvel liðið mörg ár án þess að barnaverndarþjónustan hefði heimsótt fósturheimili og rætt við barn. Í einu máli hafi verið ljóst að ástand á fósturheimili hefði ekki verið gott á um fjögurra ára tímabili og gögnin sýni að barnavernd hafi ekki fylgst nægilega vel með aðstæðum.Lítið er fjallað um málið á meðferðarfundum á tímabilinu jafnvel þótt miklar áhyggjur hafi verið í nærumhverfi barnsins,“ segir í skýrslu GEV.Í öðru máli hafi legið fyrir upplýsingar frá foreldri um að barn hafi tjáð sig um líkamlegt og andlegt ofbeldi á fósturheimilinu og að barnið hafi reynt að strjúka. Skráð hafi verið símtal við skólastjóra þar sem fram hafi komið að barnið hefði tjáð sig um að fósturforeldrar kæmu í veg fyrir að barnið gæti hringt í barnavernd.Hvergi í gögnum málsins er að finna upplýsingar um að starfsmaður hafi farið og talað við barnið eða skoðað þetta nánar. [...] Þegar gögn málsins bárust GEV í byrjun maí 2025 hafði barnið verið á fósturheimilinu í 10 mánuði en engar skráningar liggja fyrir um að starfsmaður barnaverndarþjónustunnar hafi farið í heimsókn á fósturheimilið.“Óreiða, misbrestur og rangar upplýsingarStofnunin segir tilefni frumkvæðisathugunarinnar hafa verið ábendingar um vinnubrögð barnaverndar Reykjanesbæjar. GEV óskaði í febrúar í fyrra eftir gögnum sem náðu aftur til 1. janúar 2024.Fram kemur í skýrslunni að mikil óreiða hafi verið í framlögðum gögnum barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar og því hafi úrvinnsla tekið lengri tíma en áætlað var. Sum gögn hafi borist seint og önnur vantað.Við yfirferð þeirra gagna sem send voru GEV vegna athugunarinnar kom bersýnilega í ljós að töluverður misbrestur hefur verið á fullnægjandi skráningu upplýsinga og gagna hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar,“ segir í skýrslunni.Skjöl hafi til að mynda verið ódagsett eða merkt með rangri dagsetningu, vísað hafi verið til annars barns en gögn áttu við eða vísað í rangar lagagreinar. Þá hafi ýmis skjöl verið óundirrituð.Ekkert skipulag, enginn fyrirvari“GEV hafi rætt við fósturforeldra sem hafi verið sammála um að aðkoma barnaverndarþjónustunnar að umgengni við börnin hafi verið ófullnægjandi. Verulegir annmarkar hafi verið á vinnslu mála og töluverður misbrestur á að kröfum í lögum og reglugerðum hafi verið fylgt.Vísað er í orð eins fósturforeldranna:Það er hrikalega haldið utan um [umgengni]. Ekkert skipulag, enginn fyrirvari. Það var aldrei búið að gera skipulag sem átti að standa í einhvern tíma. Við vorum látin vita með viku fyrirvara að hámarki. Þegar verst lét hringdi barnaverndarstarfsmaður hálftíma eða klukkutíma fyrir umgengni. Það hafði þá gleymst að láta okkur vita.“Of mikið álag á ráðgjöfumÍ skýrslunni er einnig vísað í afstöðu forsvarsmanna barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar og sagt að töluverð starfsmannavelta hafi verið síðustu ár og að fjölga þurfi stöðugildum því hver ráðgjafi sinni of mörgum málum. Ráðgjafar séu sama sinnis.Einn ráðgjafinn nefndi að það væri engin regla um hámarksfjölda mála á hvern ráðgjafa og það væri í raun ekki mikið hugsað út í það fyrr en ráðgjafi færi í algjört þrot og grátbiði um aðstoð. Þá kom fram að þar sem ráðgjafar væru með yfirdrifinn fjölda mála en mættu ekki vinna yfirvinnu þá kæmi það ítrekað fyrir að einhver vinnsla þyrfti að sitja á hakanum.“
March 27, 2026