Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir
World

Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir

April 6, 2026
RÚV
Scroll

Kári Halldór Sigurðsson, tíu ára strákur úr Kópavogi, hefur undanfarið selt þrívíddarprentaða hólka undir peningagjafir. Eftir að hafa selt leikjatölvuna sína og leikföng til að kaupa sér þvívíddarprentara, safnar hann nú fyrir öðrum. Foreldrar hans segja að þrívíddarprentarinn hafi verið í gangi nærri því allan sólarhringinn síðan Kári eignaðist hann í janúar.Þegar Kári fékk prentarann gerði hann samkomulag við foreldra sína um að hann myndi sjálfur safna fyrir og kaupa prentefni.

Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir

Eftir að Kári hafði prentað hólka undir peningagjafir, á þeim árstíma sem flestir eru á leið í fermingar, var ákveðið að auglýsa þá til sölu. Hver hólkur er líka þraut, lítið völundarhús sem þarf að leysa til að opna og loka. Hann hefur þegar selt yfir 100 og hyggst safna sér fyrir öðrum prentara.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More